Fara í upplýsingar um vöru
1 af 3

Butterfly House - Stór fjölnota poki

Butterfly House - Stór fjölnota poki

Venjulegt verð 1.590 ISK
Venjulegt verð Söluverð 1.590 ISK
Sala Uppselt
Skattar innifaldir. Sendingarkostnaður reiknaður við afgreiðslu.

Fiðrildi
 
Veglegur fjölnota poki með rennilás. 

Þessir pokar ganga oft undir nafninu "leikskólapokar" þar sem þeir henta einstaklega vel undir pollagallana, snjógallana, stígvélin, kuldaskóna og allan annan aukabúnað sem ferðast þarf með til og frá leikskóla í upphafi og lok hverrar viku.

Að sjálfsögðu er einnig þægilegt að geyma í honum auka sængur í geymslunni, kuldagallann á sumrin, þvottinn þegar þvottakarfan er full, auka ferðatösku þegar hin er sprungin eða hvað annað sem kemst í hann!

Mynstrin eru litskrúðug, falleg og rennilásinn veitir mikla opnun að ofan.
Pokinn er úr plöstuðu polypropylene sem gerir það að verkum að mjög þægilegt er að strúka óhreinindi af honum með blautri tusku eða einfaldlega skola hann. 

Stærð:
Hæð 48cm, breidd 55cm, dýpt 28cm

Sjá nánari upplýsingar