Skilmálar
Örvar ehf selur vörur í netverslun.
Það er einfalt og þægilegt að versla hjá okkur. Pantanir eru sendar innan 3 virka daga á afhendingarstað að eigin vali með Póstinum.
Þú velur vöru, setur í körfu, velur greiðslufyrirkomulag og pöntunin er afgreidd um leið og greiðsla hefur borist. Í kjölfarið færðu kvittun fyrir vörukaupunum í tölvupósti og þar með er kominn á samningur á milli þín og Örvar ehf.
Upplýsingar um seljanda
Seljandi er Örvar ehf., kt. 5709-140140, Húnabraut 4, 540 Blönduósi.
Verð
Öll verð í netverslun eru með virðisaukaskatti (VSK). Vinsamlegast athugaðu að verð í netverslun geta breyst án fyrirvara, vegna rangra verðupplýsinga eða prentvillna. Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og áskilur gjafabudin.is sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp.
Greiðslumöguleikar
Hægt er að greiða með greiðslukortum frá Visa, Eurocard/Mastercard eða Amex.
Örvar ehf notar örugga greiðslugátt frá Rapyd.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 14 daga til þess að hætta við kaup og er vara endurgreidd að fullu ef neðangreind skilyrði eru uppfyllt:
- Varan skal vera ónotuð.
- Vara skal vera í söluhæfu ástandi.
- Vara þarf að vera í upprunalegum umbúðum.
- Greiðslukvittun þarf að fylgja með sendingunni.
- 14 daga endurgreiðslufrestur hefst þegar varan er afhent skráðum viðtakanda.
Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema hann hafi fengið ranga eða skemmda vöru afhenta.
Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003.
Höfundaréttur og vörumerki
Texti, grafík, lógó, myndir og allt efni á www.gjafabudin.is eru eign Örvar ehf.
Og er öll afritun og endurdreifing bönnuð nema með skriflegu leyfi frá Örvar ehf.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem að hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Varnarþing
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.
Hafa samband
Netfangið er orvar@gmail.com ef einhverjar spurningar vakna.